Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ólympíuleikar ungmenna í Buenos Aires í Argentínu

29.08.2018

Ólympíuleikar ungmenna fara fram í Buenos Aires í Argentínu 6. til 18. október. Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt íþróttafólk á aldrinum 15 til 18 ára.

Á leikunum er keppt í 32 íþróttagreinum, bæði hefðbundnum sem og nýstárlegri greinum. Í fyrsta sinn á Ólympískum viðburði eru jafn margir kvenkyns og karlkyns keppendur.

Eftirtaldir keppendur og flokksstjórar/þjálfarar hafa verið tilnefndir til þátttöku í leikunum fyrir hönd síns sérsambands. Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti á fundi sínum þann 23. ágúst tilnefningarnar. Keppendurnir hafa ýmist tryggt sér þátttökurétt á úrtökumótum vegna leikanna, náð tilskyldum lágmörkum til þátttöku eða hafa verið tilnefndir af sínum sérsamböndum í boðssæti. Allt íþróttafólkið uppfyllir þær skyldur sem gerðar eru af viðkomandi alþjóðasérsambandi.

 

Fimleikar             

Martin Bjarni Guðmundsson       keppandi – fjölþraut drengja

Róbert Kristmannsson                   flokksstjóri/þjálfari

                                               

Frjálsíþróttir

Elísabet Rut Rúnarsdóttir              keppandi – sleggjukast

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir          keppandi – 200m. hlaup

Valdimar Hjalti Erlendsson           keppandi – kringlukast

Brynjar Gunnarsson                        flokksstjóri/þjálfari

 

Golf

Hulda Clara Gestsdóttir                 keppandi – einstaklings og parakeppni

Ingvar Andri Magnússon               keppandi – einstaklings og parakeppni

Jussi Pitkanen                                    flokksstjóri/þjálfari

 

Sund

Brynjólfur Óli Karlsson                   keppandi – 50 og 200m. baksund

Karen Mist Arngeirsdóttir             keppandi – 100m. bringusund

Snæfríður Sól Jórunnardóttir       keppandi – 50, 100 og 200m. skriðsund

Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir      flokksstjóri/þjálfari

 

 

Aðalfararstjóri á leikunum fyrir hönd Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verður Örvar Ólafsson.

 

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir mun taka þátt í leikunum fyrir hönd Íslands sem ungur áhrifavaldur (Young Changemaker) en um er að ræða verkefni á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar sem felur í sér að halda utan um fjölbreytta fræðslu og afþreyingu fyrir keppendur á leikunum. Ingibjörg Kristín keppti sjálf á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore árið 2010 og hefur mikla reynslu af þátttöku í stórmótum í gegnum árin en hún hefur átt langan og farsælan feril sem afreksíþróttakona í sundi.

 

Ýmsar upplýsingar, myndir og myndskeið má finna á:

Heimasíðu:         www.buenosaires2018.com

Facebook:           www.facebook.com/buenosaires2018

Twitter:                https://twitter.com/BuenosAires2018

Instagram:           https://instagram.com/buenosaires2018

 

 
Til baka