Beint á efnisyfirlit síðunnar

ÍM í víðavatnssundi - skráning í fullum gangi

24.07.2018Íslandsmótið í víðavatnssundi verður haldið í Nauthólsvík miðvikudaginn 25. júlí. Mótið er haldið af Coldwater á Íslandi í samstarfi við Sundsamband Íslands.

Fyrirkomulag keppni er óbreytt frá því í fyrra. Keppt er í 1 km, 3 km og 5 km sundum. Lengdarflokkar skiptast svo niður í karla og kvennaflokka. Sérflokkar eru fyrir keppendur í sérstökum búningum. Hröðustu einstaklingarnir án galla í 3 km sundinu hljóta sérstök verðlaun og titilinn Sjósundskóngur og Sjósundsdrotting Íslands 2018.

Verð í netskráningu til kl. 12, miðvikudaginn 25. júlí:

1 km 2000 kr
3 km 3000 kr
5 km 3500 kr

Skráning á staðnum, til kl 17:30:

1 km 3000 kr
3 km 4000 kr
5 km 4500 kr


Dagskrá:

kl 17:30: Start í 5 km
kl 18:20: Start í 3 km
kl 18:50: Start í 1 km

Þátttaka í keppninni er á ábyrgð keppanda og meðan á keppni stendur eða meðan keppandi er á keppnissvæðinu skulu þeir ávallt að hlýða ábendingum og fyrirmælum starfsmanna Hins Íslenska Kaldavatnsfélags eða dómara sem eru á vegum SSÍ,. Starfsmenn mótsins verða ávallt merktir. Á staðnum verða öryggisbátar, kajakar, brautargæsla og læknir.


Skráningarsíða Íslandsmótsins í víðavatnssundi

Úrslit 2017
Til baka