Beint á efnisyfirlit síðunnar

Upplýsingafundur fimmtudaginn 14.júní n.k

18.05.2018

.

Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur en á þessum fundi verður farið yfir atburðardagatal,lágmörk og viðmið fyrir næsta sundár ásamt ýmsum öðrum áhugaverðum viðfangsefnum.

Þessi fundur er formannafundur 2018 ( formannafundir hafa venjulega verið haldnir að hausti) og verður haldinn í staðinn fyrir þann fund sem settur var á atburðardagatalið á AMÍ helginni.

 

Aftur á móti ef það eru aðilar sem alls ekki komast 14.júní, þá mun formaður SSÍ vera til viðræðu milli hluta á AMÍ föstudaginn 22.júní.

 

Stjórn SSÍ vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta á þennan fund þar sem þetta er kjörið tækifæri til að hittast til skrafs og ráðagerða.

 Setjið þetta nú inn í dagatalið hjá ykkur og við sjáumst hress og kát þann 14.júní í E- sal í húsi ÍSÍ.

 

Til baka