Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sunddeild Aftureldingar leitar af yfirþjálfara

12.05.2018

Sunddeild Aftureldingar er í mikilli sókn og mikið uppbyggingarstarf á sér stað samhliða örum vexti Mosfellsbæjar.

 

Af því tilefni auglýsir félagið eftir metnaðarfullum einstaklingi í starf yfirþjálfara, til að halda vel utan um þann góða hóp iðkenda sem þegar er til staðar og fjölga iðkendum enn frekar. Deildin hefur aðstöðu í Lágafellslaug.

 

Umsækjandi þarf að geta hafið störf haustið 2018.

 

Í starfinu er fólgin umsjón með öllum hópum sunddeildarinnar, allt frá kennslu byrjenda og yngri hópa, til þjálfunar iðkenda í afrekshópi.

 

Æskilegt er að viðkomandi hafi

  • Menntun og reynslu á sviði íþrótta- og/eða sundþjálfunar.
  • Reynslu og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, drifkraft og sjálfstæði í starfi.

 

Áhugasamir, vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið sund@afturelding.is.
Til baka