Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frábær sumarvinna og möguleiki á skemmtilegri aukavinnu með skóla eða annari vinnu

24.04.2018

Frábær sumarvinna og möguleiki á skemmtilegri aukavinnu með skóla eða annari vinnu

 

Okkur hjá hjá Stjörnunni vantar þjálfara/aðstoðarþjálfara í sumar til að vera annar tveggja þjálfara við sumarstarfið hjá okkur. Sunddeild Stjörnunnar er eitt af fyrirmyndarfélögum ÍSÍ og hefur aðstöðu í fjórum mannvirkjum Garðabæjar. Möguleiki er fyrir viðkomandi þjálfara að koma inn í vetrarstarfið hjá okkur þar sem deildin er í miklum uppgangi.

 

Starfssvið:

·       Vera annar tveggja þjálfara að sjá um þjálfun á sumarnámskeiðum undir handleiðslu yfirþjálfara.

·       Halda utan um iðkendaskrá og skrá mætingu.

·       Halda utan um aðstoðarmenn frá unglingavinnunni í samstarfi við yfirþjálfara.

 

Hæfniskröfur:

·       Reynsla af sundþjálfun.

·       Menntun á sviði íþróttafræða. 

·       Sérhæfing í sundþjálfun er kostur.

·       Góðir samskiptahæfileikar.

·       Viðkomandi verður að geta unnið með börnum og unglingum og verið þeim góð fyrirmynd.

·       Hreint sakavottorð.

 

Einnig er staða aðstoðarþjálfara laus til umsóknar og borgar félagið námskeiðsgjöld ÍSÍ/SSÍ.

 

Nánari upplýsingar veitir Friðbjörn yfirþjálfari, sund@stjarnan.is eða í síma 661-3210 (eftir kl. 17). Umsókn og ferilskrá skal skila á sund@stjarnan.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Til baka