Beint á efnisyfirlit síðunnar

Adele og Mladen á NÆM í Færeyjum

06.07.2017

Í fyrramálið halda þau Adele Alexandra Pálsson og Mladen Tepavcevic úr SH utan til að taka þátt á Norðurlandameistaramóti Æskunnar í Færeyjum.

Mótið er í þremur hlutum og hefst á laugardagsmorgun en keppni hefst kl.12 að íslenskum tíma. Adele keppir í 800m, 400m og 200m skriðsundi og sem fyrr segir fylgir Mladen henni sem þjálfari.

 

Hægt er að nálgast dagskrá, úrslit og keppendalista mótsins hér

Að öllum líkingum verður mótinu sjónvarpað beint á netinu en tengillinn verður birtur um leið og það kemur í ljós. 

Upplýsingasíða á heimasíðu Færeyska sambandsins

Til baka