Beint á efnisyfirlit síðunnar

Muscat systkinin synda ekki um helgina

26.05.2015

Leiðindafréttir bárust frá Sundsambandi Möltu á dögunum en ákveðið hefur verið að Nicola Muscat muni ekki synda á Smáþjóðaleikunum hér á Íslandi um helgina. Fram kemur á vef Morgunblaðsins að henni hafi verið vísað úr maltneska liðinu þar sem hún þótti sýna óviðunandi hugarfar á æfingum.

Bróðir hennar, Neil Muscat var einnig rekinn úr liðinu en þar sem það gerðist fyrr tókst að fá varamann fyrir hann, Matthew Galea.

Nicola var eina sundkonan í liði Möltu en nú er ljóst að einungis verða karlmenn í liðinu um helgina.

Til baka