Beint á efnisyfirlit síðunnar

Anton á pall á NCAA

28.03.2015Anton Sveinn og félagar hans í boðsundsveit Alabama höfnuðu í þriðja sæti í 4x100 yarda fjórsundi á NCAA sem fram fór á fimmtudaginn. NCAA er lokamót háskólanna í Bandaríkjunum sem fer fram í Iowa City dagana 26. – 28. mars. Anton synti bringusundið í boðsundinu á 52.37. Anton er annar Íslendingurinn sem kemst á pall á NCAA mótinu, en Ragnheiður Runólfsdóttir náði því einnig þegar hún var við nám í Alabama. Anton Sveinn synti einnig 500 jarda skriðsund á tímanum 4.16,47 og endaði í 17. sæti einu sæti frá B úrslitum. Á föstudag syndir hann 100 jarda bringusund og laugardag 200 jarda bringusund
Til baka