Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sunddeild Breiðabliks auglýsir eftir þjálfara fyrir yngri hópa. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun janúar 2015.

29.10.2014

Sundþjálfari                                                                

Sunddeild Breiðabliks auglýsir eftir þjálfara fyrir yngri hópa. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun janúar 2015.

Starfssvið:
Þjálfun C og D hópa í Salalaug.
Halda utan um iðkendaskrá sinna sundmanna og skrá mætingu.
Hafa frumkvæði að þátttöku á sundmótum í samvinnu við yfirþjálfara, sjá um skráningu á sundmót og úrvinnslu gagna að móti loknu.

Hæfniskröfur:
Reynsla af sundþjálfun er nauðsynleg auk góðrar menntunar á sviði íþróttafræði.
Sérhæfð menntun í sundþjálfun er kostur.
Viðkomandi verður að geta unnið með unglingum og börnum og verið þeim góð fyrirmynd.

Nánari upplýsingar veitir María Fanndal Birkisdóttir formaður sunddeildar Breiðabliks í síma 845-5870. Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila á netfangið mariafb@hotmail.com fyrir 7. nóvember næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Sunddeild Breiðabliks er eitt af fyrirmyndarfélögum ÍSÍ og fylgir stöðlum þar að lútandi. Í deildinni er æft í fimm aldurshópum að jafnaði auk sundæfinga fyrir fullorðna (Garpar). Þá stendur Sunddeild Breiðabliks einnig fyrir sundnámskeiðum fyrir yngri börn og fullorðna að vetri og sumri. Þjálfun og kennsla fer fram á tveimur stöðum, í Salalaug og Sundlaug Kópavogs á Kársnesi. Nánar upplýsingar um sunddeildina er að finna á www.breidablik.is/sund.

Til baka