Beint á efnisyfirlit síðunnar

Laugarvarðapróf

12.09.2014Heil og sæl Sundsambandið hefur ákveðið að bjóða uppá námskeið sérhæfðri skyndihjálp og björgun fyrir þjálfara á sundstöðum. Markmið þessa námskeiðs er að auka þekkingu og færni þjálfara í að bregðast við neyðartilfellum á sundstöðum. Finnbjörn Aðalheiðarson mun vera með námskeið helgina 20.-21 september n.k í Pálsstofu í Laugardalslaug. Kennt verður báða dagana frá kl 9. -15. Laugardaginn 20. sept verður farið í bóklega hlutann en verklegi hlutinn verður tekinn á sunnudeginum. Vinsamlegast kynnið þetta fyrir ykkar félögum, en þjálfarar mega ekki sinna þjálfarastörfum nema hafa tekið þetta próf. Kostnaður við þetta námskeið verður stillt í hóf en fer eftir fjölda,vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir kl 11 föstudaginn 19. september á sundsamband@sundsamband.is
Til baka