Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sjósundgarpur 2013 - útgerðarkeppni SSÍ

01.10.2013Um síðustu helgi fór fram keppni milli útgerðarfélaga í sjósundi.  SSÍ stóð fyrir keppninni ásamt Landhelgisgæslunni og ÍTR.  Keppnin var haldin í frábærri aðstöðu ÍTR í Nauthólsvík og tókst mjög vel með dyggri aðstoð SJÓR, Sjósund- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur.  

Í upphafi syntu 40 félagar úr SJÓR 260 metra þar sem þeir kepptu um hver væri með frumlegasta höfuðfatið. 

 Í framhaldi af því kepptu 10 fulltrúar útgerðarfélaganna um titilinn Sjósundgarpur Íslands 2013.  Þar varð hlutskarpastur Árni Guðnason en hann var fulltrúi Hvals í keppninni.  Í öðru sæti varð Davíð Davíðsson fulltrúi HB Granda.  

SSÍ þakkar þátttakendum kærlega fyrir góða skemmtun og Landhelgisgæslunni og ÍTR/Reykjavíkurborg fyrir frábært samstarf.  Við sjáumst að ári í Nauthólsvíkinni.

Myndir með frétt

Til baka