Beint á efnisyfirlit síðunnar

Færeyjar vs Ísland frestað

30.09.2013Sundsamband Íslands og Sundsamband Færeyja urðu ásátt í dag um að fresta sundkeppninni Færeyjar vs Ísland sem átti að fara fram laugardaginn 5. október 2013, fram á vorið 2014.  Þetta er gert að beiðni SSÍ,  Keppnin verður þess í stað annaðhvort síðustu helgina í apríl eða fyrstu helgina í maí 2014.  Við þökkum þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að undirbúa keppnina.  Við munum mæta sterk til leiks í vor til Færeyja.

Myndir með frétt

Til baka