Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

08.08.2015

Bryndís Rún Hansen 50m skriðsund á HM50

Bryndís Rún var rétt í þessu að synda 50m skriðsund á HM50 í Kazan hún synti á 00.26.33 og varð í 50 sæti af 113 keppendum. íslandsmetið á Sarah Blake Bateman 00.25.24. A- lágmarkið á ÓL 2016 er 00.25.28. Bryndís eftir að keppa í 4x100m fjórsundi á morgun sem verður afar spennandi.
Nánar ...
07.08.2015

Eygló Ósk sjöunda inn í úrslit á morgun- nýtt Íslands- og Norðurlandamet

Eygló Ósk synti rétt í þessu 200m baksund í undanúrslitum á HM50 í Kazan á tímanum 2.09.04, sem er nýtt íslands og norðurlandamet, bæting síðan í morgun! Þá synti hún á 2.09.16. Eygló er sjöunda inn í úrslit sem verða seinnipartinn á morgun. Frábær árangur hjá Eygló sem er önnur íslenska sundkonan sem kemst í úrslit á Heimsmeistraramóti. Spennan heldur áfram!
Nánar ...
07.08.2015

Nýtt íslandsmet hjá Bryndísi Rún í 50m flugsundi.

Bryndís Rún synti nú í morgun á HM50 í Kazan 50m flugsund á tímanum 26.79 á nýju íslandsmeti. Gamla metið átti hún sjálf 26.92 sem hún setti á Íslandsmeistaramótinu í apríl. Bryndís varð númer 21 af 64 keppendum, það munaði ekki miklu að hún kæmist í undanúrslit en 16 sætið synti á tímanum 26.49, flottur árangur hjá Bryndísi. Bryndís syndir aftur á morgun 50m skriðsund.
Nánar ...
06.08.2015

Umsund Hrafnhildar í 200m bringusundi

Hrafnhildur synti á 2.25.11 í umsundinu á móti Jinglin Shi frá Kína og beið lægri hlut og komst því ekki í úrslita sundið á morgun. Jinglin synti á 2.23.75 Engu að síður glæsilegur árangur hjá Hrafnhildi sem á eftir að synda 50m bringusund á laugardaginn og 4x100m fjórsund á sunnudaginn.
Nánar ...
06.08.2015

Hrafnhildur setti nýtt íslandsmet 2.23.06, varð jöfn Jinglin Shi frá Kína, syndir aftur á eftir ca kl 16.38

Hrafnhildur synti nú rétt í þessu 200m bringusund í undanúrslitum á HM50 í Kazan. Hún synti á nýju íslandsmeti 2.23.06. Það urðu tvær jafnar í 7 sæti og þarf því Hrafnhildur að synda aftur eftir síðustu grein í kvöld ca kl 16.38 á ísl tíma, til að skera úr um hver fær áttunda sætið inn í úrslit. Hún syndir á móti Jinglin Shi frá Kína.
Nánar ...
06.08.2015

Anton Sveinn Mackee tíundi inn í undanúrslit í dag

Anton Sveinn Mckee var rétt í þessu að synda 200m bringusund á nýju íslandsmeti á tímanum 2.10.21. Hann átti sjálfur gamla metið 2.10.72. Anton er númer 10 inn í undanúrslit í dag. A- Ól lágmarkið er 2.11.66, Anton er því komin með A-lágmark í 100m og 200m bringusundi. Spennandi dagur framundan hjá íslenska liðinu, tveir í undanúrslitum í dag.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum