Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

20.05.2016

Eygló Ósk synti 50m baksund í morgun

Eygló Ósk synti rétt í þessu 50m baksund á EM50 í London á tímanum 29.40 og endaði í 22.sæti. Íslandsmet Eyglóar er 28.61 semhún sett í Kazan í ágúst í fyrra. Næsta sund hjá Eygló er 4x100m fjórsund sem verður á sunnudaginn
Nánar ...
19.05.2016

Hrafnhildur fjórða inn í úrslit á morgun

Hrafnhildur synti rétt í þessu 200m bringusund á EM50 á tímanum 2.24.11 og er fjórða inn í úrslitin á morgun. Íslandsmet Hrafnhildar er 2.23.06. Það má búast við æsispennandi sundi annað kvöld hjá þessum átta sem eru komnar í úrslit.
Nánar ...
19.05.2016

Bryndís Rún 23 í 100m flugsundi

Bryndís Rún synti rétt í þessu 100m flugsund á tímanum 1.00.33 sem er bæting hjá henni. Hún endaði í 23 sæti af 40 keppendum. Það munaði ekki miklu að hún hefði náð inn í undanúrslit en þaði hún þurfti að synda á 59.83 til að ná því.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum