Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

28.09.2013

Munið Nauthólsvík í dag kl. 13:00

Í dag fer fram keppni útgerðarfélaga um titilinn sjósundkappi Íslands 2013. Keppnin fer fram í Nauthólsvík kl. 14:00 en á undan synda félagar í SJÓR. Í lokin verður svo menntamálaráðherra veiddur upp úr sjónum upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Það eru Sundsamband Íslands, Landhelgisgæslan og ÍTR sem standa fyrir viðburðinum.
Nánar ...
28.09.2013

Paolo Frischnecht nýr framkvæmdastjóri LEN

Portúgalinn Paolo Frischnecht hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri LEN. Þetta var tilkynnt á ársþingi LEN nú rétt í þessu. Hann tekur við af Laszlo Szakadati i sem lét af störfum fyrr á þessu ári. Paolo var formaður portúgalska sundíþróttasambandsins í nokkur ár og hefur setið í stjórn LEN og FINA undanfarin kjörtímabil. Hann er fyrrum sundmaður og þekkir vel til í sundheiminum. SSÍ væntir mikils af samstarfi við Paolo, en við höfum fundið fyrir því hversu mikilvægt er fyrir SSÍ að vera í góðu sambandi við LEN.
Nánar ...
27.09.2013

Eistland orðinn fullgildur meðlimur í NSF

Eistland varð áðan fullgildur meðlimur í NSF, Norræna sundsambandinu. Þetta var samþykkt á aukaþingi NSF í Edinborg í dag. Fram til þessa hefur Eistland verið aukameðlimur í sambandinu, en kemur nú inn með fulla ábyrgð og skyldur. Þá eru NSF löndin orðin 7.
Nánar ...
26.09.2013

Sjósundgarpur ársins 2013 - útgerðirnar keppa á laugardaginn

Sjósundkeppni fer fram í Nauthólsvík laugardaginn 28.9.2013 klukkan eitt. Þar keppa útgerðarfyrirtækin um titilinn „Sjósundgarpur Íslands 2013“. Keppnin er samstarfsverkefni Sundsambands Íslands, Landhelgisgæslunnar og ÍTR. Keppnin fer þannig fram að keppendur (fulltrúar útgerðarfyrirtækja) stinga sér til sund frá varðskipinu Baldri, sem siglt verður inn í Nauthólsvíkina, og synda í land en endamarkið er á sandströndinni í Nauthólsvík við pottinn. Vegalengdin sem synd er 100 metrar. Dagskrá: Kl. 13.00 synda meðlimir Sjór (Sjósund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur), sem er aðildarfélag að Sundsambandi Íslands, 260 metra vegalengd. Veitt verða verðlaun fyrir skrautlegasta höfuðfatið. Kl. 14.00 hefst keppni milli útgerðarfélaga þar sem synt verður frá varðskipinu Baldri í land. Sigurvegari er „Sjósundgarpur Íslands 2013“. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fylgja sundmönnum eftir á gúmmíbátum og er kafari tilbúinn til taks. Kl. 15.00 verður Menntamálaráðherra hent í sjóinn og sýnir áhöfn þyrlunnar nýstárlega björgun þar sem viðkomandi er veiddur upp úr sjónum með þar til gerðu neti. Markmiðið er að vekja athygli á fjölbreyttu starfi Sundsambands Íslands, öryggi sjómanna og mikilvægi þess að kunna að synda. En afhverju stendur SSÍ fyrir sjósundkeppni útgerða á laugardaginn? Það er mikilvægt að kynna sund og minna á hversu mikilvægt það er fyrir Íslendinga að kunna að synda og bjarga sér. Að auki SSÍ er að vinna að því að koma upp Lífbjörgunardeild innan sambandsins að Evrópskri fyrirmynd og við erum að gera okkur gildandi í norrænu samstarfi um Lífbjörg og verðum vonandi meðlimir í Evrópusamtökunum um Lífbjörg fyrir árslok. Landhelgisgæslan er að kynna nýjungar í björgun úr sjó og ÍTR er að vekja athygli á frábærri aðstöðu sem rekin er í Nauthólsvík. Framundan hjá SSÍ er árleg keppni milli Íslands og Færeyja fer fram í Færeyjum laugardaginn 5. október og sömu helgi heldur SSÍ í samvinnu við Sf Ægi Norðurlandameistaramót garpa, í Laugardalslaug. Undirbúningur fyrir Íslandsmeistaramót, Evrópumeistaramót og Norðurlandameistaramót í stuttu brautinni (25m) í nóvember og desember er á fullu og auðvitað erum við alltaf að búa okkur undir stóru mótin, EM, HM, Smáþjóðaleika og Ólympíuleika. Í maí tekur Ísland við forsæti í Norræna sundsambandinu (Ísland, Færeyjar, Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk) og við höfum í samstarfi við norrænu vini okkar mannað tvær nefndir LEN Evrópska sundsambandsins, sundtækninefndina og garpanefndina. SSÍ er í stöðugri þróun og undir sambandið heyra eftirtaldar íþróttagreinar: Keppnissund, garpasund, sundknattleikur, víðavatnssund, dýfingar og samhæfð sundfimi þannig að verkefnin eru ærin. Að auki höfum við í samstarfi við HÍ látið útbúa námsefni fyrir þjálfara sem hægt er að sækja á netið. Það þýðir að þjálfari sem ætlar að sækja sér réttindi getur tekið bóklega hluta ÍSÍ og SSÍ á netinu og kemu einungis 2 helgar í verklega kennslu í stað 12 áður.
Nánar ...
22.09.2013

Í upphafi sundárs - Leiðrétt gögn komin á netið

Undanfarnar vikur hefur stjórn og starfsfólk SSÍ unnið að því að setja saman þau gögn sem máli skipta fyrir nýbyrjað sundár. Við höfum kallað eftir athugasemdum og aðstoð úr hreyfingunni og hittum þjálfara, formenn og foreldra/forráðamenn landsliðsfólks á fundum. Þessi samskipti hafa verið gefandi og leitt margt ágætt af sér. Landsliðsnefnd og Dómara-, móta- og tækninefnd hafa haldið fundi og stjórn SSÍ hefur komið saman í tvígang á þessu hausti til að ræða þessi mál, annars vegar 14. ágúst og hins vegar 18. september. Til að sjá gögnin sem eru þegar komin inn er hægt að smella á hlekkina og þá verðið þið leidd að beint að þeim. Ýmsar ákvarðanir hafa verið teknar og breytingar hafa verið samþykktar undanfarnar vikur. Þar er fyrst til að taka breytingar á stjórn SSÍ. Karen Malmquist stjórnarmaður hefur tekið sér leyfi frá stjórnarstörfum ótímabundið vegna persónulegra mála. Jón Oddur Sigurðsson hefur sagt sig frá störfum í stjórn SSÍ vegna anna. Þau munu bæði tengjast sundhreyfingunni áfram og sinna einstökum verkefnum, eftir því sem verkast. Í stað þeirra koma inn í stjórn varamennirnir, Ingibjörg Kristinsdóttir og Jónas Tryggvason. Unnið hefur verið að atburðadagatali SSÍ. Það er nánast tilbúið og verður gefið út í endanlegri mynd eftir ársþing Evrópska sundsambandsins, LEN nú í lok mánaðar. Lágmörk fyrir SSÍ mótin eru tilbúin og birt á heimasíðu SSÍ og lágmörk og viðmið fyrir landsliðsverkefni eru einnig tilbúin að mestu og birt á heimasíðunni. Þá var reglugerðum fyrir ÍM25, ÍM50, UMÍ og AMÍ breytt lítillega til að koma til móts við mjög ákveðnar ábendingar úr hreyfingunni. Stjórn SSÍ hefur staðsett öll sundmót sambandsins, ennþá á eftir að fastnegla staðsetningu á Íslandsmóti og Bikarkeppni í Sundknattleik og það hefur ekki verið sett dagsetning á Íslandsmót í víðavatnssundi og dýfingum. Víðavatnssundið fer fram í Nauthólsvík og dýfingarnar í Sundhöll Reykjavíkur. Að öðru leyti verða mót SSÍ staðsett sem hér segir: ÍM25 verður í Ásvallalaug, framkvæmdaaðili SH. Bikarkeppni SSÍ verður í Laugardalslaug, framkvæmdaaðili SSÍ. ÍM50 verður í Laugardalslaug, framkvæmdaaðili SSÍ. 3 og 5 km mót verður í Laugardalslaug, framkvæmdaaðili SSÍ. IMOC verður í Ásvallalaug, framkvæmdaaðili SH. AMÍ verður í Vatnaveröld Reykjanesbæ, framkvæmdaaðili ÍRB. UMÍ verður í Ásvallalaug, framkvæmdaaðili SH. Hy-tec skrár fyrir öll mót SSÍ munu berast félögunum á næstu dögum. Í lok ÍM25 verður að venju uppskeruhátíð SSÍ fyrir síðasta sundár, en ekki hefur verið gengið frá því hvar það verður, né hver kostnaður við það verður. Stjórn SSÍ hefur áhuga á að í lok UMÍ verði einhverskonar sumarhátíð þar sem margir sundmenn eru þá á leið í leyfi frá sundiðkun. Hugmyndin hefur ekki verið útfærð, en allar ábendingar verða vel þegnar. Gerðar hafa verið breytingar á II. kafla reglugerða SSÍ, Almennum ákvæðum, en þar var fyrst og fremst verið að færa textann til þess sem gert er í raunveruleikanum auk þess sem nokkrar ambögur voru lagfærðar. III. kafla reglugerða SSÍ, Hlutverk SSÍ og starfsnefnda var einnig breytt lítillega, þar var bætt við einni starfsnefnd SSÍ, þjálfaranefnd, sem ætlað er að vera rödd starfandi þjálfara gagnvart SSÍ en einnig styðjandi við það starf sem fram fer á landsvísu í uppbyggingu sundíþróttarinnar. Þessari nefnd er að auki ætlað að vera farvegur samtals milli starfandi þjálfara á hverjum tíma og stjórnar SSÍ. Hulda Bjarkar þjálfari hjá Breiðablik hefur verið mjög ötull talsmaður sjónarmiða þjálfara á undanförnum mánuðum og á hún góðar þakkir skyldar fyrir það starf. Ég hvet starfandi þjálfara til að tilnefna þrjá úr sínum hópi í þessa nefnd. Best væri að tilnefningarnar bærust stjórn SSÍ fyrir stjórnarfund sambandsins 18. október. Skipaður hefur verið hópur til að vinna að betri útfærslu á Íslandsmóti félagsliða. Þeir sem hafa verið beiðnir um að taka sæti í hópnum eru: Ingibjörg Kristinsdóttir úr stjórn SSÍ, Jón Hjaltason formaður KR, Heiðar Ólason formaður Óðins og Pétur G. Markan framkvæmdastjóri HSV. Hópnum er ætlað að skila niðurstöðu fyrir 1. nóvember. Stjórn SSÍ hefur samþykkt lágmörk og viðmið í landsliðsverkefni að tillögu Landsliðsnefndar og landsliðsþjálfara. Sum lágmörkin eru heldur stífari en kynnt var á þjálfarafundi og formannafundi, þar sem mjög ákveðnar ábendingar komu fram frá þjálfurum um að þeim þætti fyrri tillagan of metnaðarlítil. Þá var samþykkt tillaga um að sundfólk sem nær lágmörkum inn á alþjóðleg mót, má synda aðrar greinar á viðkomandi móti að því tilskyldu að tími sem sundfólkið á í þeim greinum sé ekki meira en 1,50% lakari en lágmarkstími greinarinnar og reglur viðkomandi móts leyfi það. Þjálfarar viðkomandi sundfólks þurfa að senda óskir til SSÍ varðandi slíkar aukagreinar þegar lágmarkatímabili lýkur. Einnig var samþykkt tillaga um að einungis væri hægt að ná lágmörkum í alþjóðleg verkefni (landsliðsverkefni) á sundmótum sem eru á atburðardagatali SSÍ í upphafi sundtímabils (staðfest af landsliðsnefnd) og á mótadagatali LEN og FINA. Landsliðsnefnd gefur út lista yfir mót sem gilda um leið og endanlegt atburðadagatal verður gefið út 1. október 2013. Landsliðsnefnd og landsliðsþjálfari lögðu einnig fram tillögu um uppbyggingu landsliða sem stjórn hefur samþykkt. Tillagan hljóðar svo: „Landslið skiptast í Afrekslandslið Landslið Unglingalandslið Framtíðarhóp Landsliðsnefnd setur viðmið fyrir hvern hóp fyrir sig Einn úr stjórn eða landsliðsnefnd verður ábyrgur fyrir hverjum hópi Landsliðsþjálfari velur þjálfara til að styðja við og sjá um hvern hóp. Sá þjálfari vinnur náið með landsliðsþjálfara Haldnir verða æfingadagar fyrir alla hópa – sameiginlega eða sér.“ Það er von okkar í stjórn SSÍ að þessi uppbygging fari fram á sem breiðustum grunni og allir þjálfarar verði viljugir að taka þátt í slíkri uppbyggingu. Stjórn SSÍ og starfsfólk hafa líka gengið í að uppfæra metaskrár. Þær verða birtar hér innan nokkurra daga. Af fenginni reynslu er ekki ólíklegt að einhver met hafi fallið milli stafs og hurðar. Því biðjum við ykkur að fara yfir metaskrárnar og benda okkur á ef þið sjáið villur, þannig að hægt sé að lagfæra þær fljótt og vel. Stjórn SSÍ hefur ákveðið að kaupa mótaforritið Splash. Um leið er félögum og deildum boðið að ganga inn í tilboð sem SSÍ hefur fengið frá rétthöfum bæði um móta- og þjálfarahluta forritsins. Helstu kostir Splash umfram önnur mótaforrit er að það getur lesið gögn úr öðrum forritum, það er beintengt gagnagrunni og auðveldar utanumhald upplýsinga og auðvelt er að ná upplýsingum fram á ýmsu formi með því. Þau félög og deildir sem hafa áhuga á að ganga inn í þessi viðskipti eru beðin um að vera í sambandi við Ingibjörgu framkvæmdastjóra fyrir 15. október. Varðandi fjáröflun, þá eru að hefjast nokkur verkefni sem munu taka á sig mynd á næstunni. Við vonum að þau skili okkur fjármunum til að auðvelda okkur starfið. Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í verkefnum með okkur megið þið gjarnan vera í samband við formann SSÍ. Smáþjóðaleikarnir 2015 verða haldnir á Íslandi. Sundið er okkar stærsta íþrótt á leikunum og mikilvægt að við í sundhreyfingunni stöndum okkur vel í undirbúningnum. Við höfum þegar skipað í stöðu greinastjóra og umsjón dómgæslu og mannvirkja, en okkur vantar fólk til að taka að sér umsjón með undirbúningi á ýmsum sviðum. Áætlað er að halda fyrsta „testmótið“ á ÍM50 2014, ráðgert er að RIG 2014 og ÍM50 2015 verði einnig notuð til að stilla okkur af. Fram að því þurfum við að halda vel á spöðunum. Á undanförnum árum hafa formaður SSÍ og ritari SSÍ átt fundi með stjórnum félaga. Þessir fundir hafa gefist ágætlega og við höfum getað glöggvað okkur á þeim málum sem brenna á stjórnum félaga og stundum höfum við getað lagt eitthvað af mörkum í þessum samtölum eða í framhaldi af þeim. Það er ósk okkar hjá SSÍ að þessi samskipti haldi áfram í vetur. Hafið endilega samband á formaður@sundsamband.is . Heimasíða SSÍ var endurnýjuð síðastliðinn vetur og við höfum farið okkur gætilega í að þróa hana áfram. Við viljum að síðan verði góð upplýsingasíða en ekki síður fréttasíða þar sem við söfnum saman sögunni okkar. Ritstjórn síðunnar er í upphafi á höndum formanns, framkvæmdastjóra og mótastjóra, en ætlunin er að þeir sem fara sem fylgdarfólk í verkefnum geti einnig sett inn efni/fréttir á virkan hátt. Fundargerðir núverandi stjórnar SSÍ eru nú allar aðgengilegar á síðunni ásamt þinggerð Sundþings 2013 er komin á síðuna ásamt þinggerð 2011. Allar ábendingar um það sem betur má fara á síðunni eru vel þegnar á netfangið formadur@sundsamband.is .
Nánar ...
19.09.2013

Sunddómarnámskeið í september og október 2013

Sunddómaranámskeið verður haldið miðvikudaginn 25. september n.k. í Pálsstofu í Laugardalslaug í Reykjavík Námskeiðið hefst kl. 18.00. Verklegi hluti námskeiðsins fer fram á Haustmóti Ármanns sem haldið verður dagana 27.-29. september í Laugardalslaug. Skráning fer fram í netfangi Dómara-, móta- og tækninefnd: dmtnefnd@gmail.com Við skráningu þarf nafn, félag, netfang og símanúmer. Einnig verður haldið námskeið miðvikudaginn 9. Október í Ásvallalaug í Hafnarfirði og mun verklegi hlutinn fara fram á TYR móti Ægis dagana 11.-13. Október. Skráning fer einnig fram hjá dmtnefnd@gmail.com
Nánar ...
11.09.2013

Umsókn um Þjálfarastyrki ÍSÍ

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vef ÍSÍ á hlekk hér fyrir innan
Nánar ...
06.09.2013

Viðtal við Helgu og Þórunni í sundþorpinu í Einhoven.

Hér fyrir innan er tengill á facebooksíðu SSÍ, en þar er að finna stutt viðtal við þær vinkonur Helgu Sigurðadóttur og Þórunni Kristínu Guðmundsdóttur, sem samkvæmt okkar bestu vissu eru fyrstu Íslendingarnir til að keppa á EM garpa. Það eru margir sem koma að framkvæmd svona móts eins og EM garpa er. Þar á meðal er stór......................
Nánar ...
06.09.2013

Þórunn og Helga á EM garpa ásamt 5100 öðrum

Þórunn Krístín Guðmundsdóttir og Helga Sigurðardóttir úr Sundfélaginu Ægi eru keppendur á Evrópumeistaramóti Garpa sem fram fer í Eindhoven. Þórunn keppti í morgun í 200 metra bringusundi og stóð sig vel að vanda. Helga syndir í eftirmiðdaginn 50 metra skriðsund og ekki við öðru að búast af henni.
Nánar ...
05.09.2013

Helga stóð sig vel í Eindhoven

Helga Sigurðardóttir Sundfélaginu Ægi stóð sig vel í 100 metra skriðsundi núna áðan á EM garpa í Eindhoven. Hún synti á 1:07,60, en eftir 50 metra var tíminn hennar 31,61 sek. Fínn tími hjá Helgu. Hér fyrir innan eru nokkar myndir af Hlegu fyrir og eftir sund.
Nánar ...
05.09.2013

Helga komin til Eindhoven

Helga Sigurðardóttir úr Sundfélaginu Ægi er komin til Eindhoven á Evrópumeistaramót garpa sem haldið er í Pieter van der Hoogenband sundmiðstöðinni. Helga syndir í dag 100 metra skriðsund og hefst sundið hennar uþb kl. 15:00 að íslenskum tíma. Hér fyrir innan eru tenglar á heimasíðu mótsins og fleira.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum