Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

30.06.2014

UMÍ 2014 lokið

Í gær lauk Unglingameistaramóti Íslands, UMÍ, í Ásvallalauginni í Hafnarfirði. Mótið hófst á laugardaginn og gekk mótið afar vel fyrir sig. Sundfélag Hafnarfjarðar sá um framkvæmd mótsins og þakkar SSÍ þeim kærlega fyrir gott samstarf. Keppendur að þessu sinni voru tæplega 100 en heimamenn í SH voru með flesta keppendur eða 22 talsins en ÍRB komu þar næst á eftir með 19 sundmenn.
Nánar ...
28.06.2014

UMÍ hafið í Ásvallalaug

Unglingameistaramótið í sundi hófst nú kl. 10 í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Tæplega 100 keppendur frá 11 félögum munu synda yfir helgina en mótið er keyrt í þremur hlutum í 50m laug og lýkur í hádeginu á morgun.
Nánar ...
25.06.2014

Unglingameistaramót Íslands 2014

Um helgina fer Unglingameistaramót Íslands, UMÍ fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði í samstarfi við Sundfélag Hafnarfjarðar. Um 100 keppendur eru skráðir til leiks að þessu sinni frá 10 félögum. Synt er í beinum úrslitum í stúlkna og piltaflokkum 15-17 ára annarsvegar og opnum flokki 15-20 ára. Sú breyting er á frá síðasta ári að nú hefur það sundfólk, 13 og 14 ára, leyfi til að synda á mótinu hafi það synt greinarnar á AMÍ og séu þau með lágmörk á UMÍ.
Nánar ...
25.06.2014

24 tíma sund Guðmundar Hafþórssonar.

Þann 27. júní nk. mun Guðmundur Hafþórsson sundkappi og einkaþjálfari þreyta 24 klukkustunda áheitasund í Sundlaug Garðabæjar til styrktar Líf styrktarfélagi Kvennadeildar Landspítalans. Allur ágóði af sundinu mun renna til endurbóta á aðstöðu foreldra sem þurfa að dvelja langdvölum á Landspítalanum með barn á vökudeild eða á Sængurkvennagangi Kvennadeildarinnar.
Nánar ...
15.06.2014

ÍRB Aldursflokkameistari í sundi 2014

Nú seinnipartinn í dag lauk Aldursflokkameistaramótinu í sundi 2014 sem haldið var um helgina í Reykjanesbæ. ÍRB höfðu titil að verja og stóðu þau svo sannarlega undir væntingum og stóðu uppi sem sigurvegarar með 1069,5 stig á meðan Ægiringar með 536 stig og SH með 458 stig, enduðu í öðru og þriðja sæti. Fjögur aldursflokkamet voru slegin á mótinu en Karen Mist Arngeirsdóttir bætti telpnametin í 50m og 100m bringusundi og var svo meðlimur í telpnasveit ÍRB sem setti met í 4x50m fjórsundi og 4x100m fjórsundi telpna. Ásamt Kareni syntu þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Stefanía Sigurþórsdóttir í sveitinni. Á lokahófinu í kvöld voru svo veitt verðlaun fyrir bestu afrek mótsins í aldursflokkunum.
Nánar ...
15.06.2014

Staðan fyrir lokadaginn á AMÍ - Telpnamet í gærkvöldi

Nú er að hefjast fimmti og næstsíðasti hluti á AMÍ 2014. Krakkarnir fengu litla hvíld milli hluta í gær en stóðu sig engu að síður ótrúlega vel á lengstu hlutum mótsins. Helst ber að nefna telpnamet sveitar ÍRB er þær bættu fjögurra ára gamalt met í 4x50m fjórsundi. Gamla metið, sem einnig var í eigu ÍRB, var 2.06,89 en þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Stefanía Sigurþórsdóttir syntu á 2.06,59.
Nánar ...
14.06.2014

Telpnamet og stigastaða eftir 3. hluta AMÍ

Nú rétt í þessu lauk þriðja hluta AMÍ 2014 og er mótið því hálfnað. Eitt met féll í morgun en telpnasveit ÍRB bætti eigið met frá því í fyrra og syntu á tímanum 4.30,42. Gamla metið var frá því á ÍM25 í nóvember í fyrra og var 4.35,61. Sveitina í dag skipuðu þær Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir og Stefanía Sigurþórsdóttir.
Nánar ...
14.06.2014

AMÍ: Stigastaðan eftir dag eitt

Þriðji hluti Aldursflokkameistaramótsins í sundi hófst nú rétt í þessu hér í Reykjanesbæ. Í gær voru syntar fyrstu 20 greinarnar en hér að neðan má sjá stigastöðu eftir gærdaginn. ÍRB 410 Ægir 187
Nánar ...
13.06.2014

Hrafnhildur með Íslandsmet - Leiðrétt

Nú rétt í þessu setti Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH Íslandsmet í 100m bringusundi þegar hún bætti eigið met þegar hún synti á tímanum 1.08,57 á 51. "Seven Hill" mótinu í Róm. Leiðrétt: Gamla metið var 1.08,62 sem hún setti á ÍM50 í apríl. Vel gert hjá Hrafnhildi sem á eftir að synda 50m og 200m bringusund á næstu dögum og verður spennandi að fylgjast með hvort hún bæti sig enn frekar.
Nánar ...
11.06.2014

AMÍ 2014 - Skrúðganga kl. 20 á fimmtudag

Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi, AMÍ, hefst næsta föstudagsmorgun í Vatnaveröld í Reykjanesbæ og eru sundmenn yngri kynslóðarinnar nú að leggja lokahönd á æfingar fyrir mótið. AMÍ 2014 er stigamót félagsliða og þegar mótinu lýkur á sunnudaginn verður stigahæsta liðið krýnt Aldursflokkameistari Íslands á lokahófi í Stapanum í Reykjanesbæ. Einnig verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu keppendur í flokkum piltna, stúlkna, drengja, telpna, sveina og meyja.
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum