Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttalisti

11.04.2015

Þrjú met á öðrum degi ÍM50

Öðrum degi er nú lokið á ÍM50 í Laugardalslaug. Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi hóf úrslitahlutann af krafti og bætti eigið Íslandsmet í greininni er hún sigraði á tímanum 1:00,89. Gamla metið var ársgamalt, 1:01,08. Brynjólfur bætti svo þriðja drengjametið sitt á mótinu en hann synti 100m baksund á 1:02,84. Metið átti hann sjálfur en það var 1:03,17 frá því í febrúar.
Nánar ...
09.04.2015

ÍM50 hefst í fyrramálið

Íslandsmeistaramótið í 50m laug verður haldið núna helgina 10.-12. apríl í Laugardalslaug. Í ár er mótið notað sem æfingamót fyrir Smáþjóðaleikana sem haldnir verða hér í Reykjavík í byrjun júní.
Nánar ...
07.04.2015

Hádegisfundur fimmtudaginn kl 11.30

Fimmtudaginn 9. apríl býður ÍSÍ til hádegisfundar þar sem kynntar verða niðurstöður tveggja meistaraverkefna frá Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl.11:30. Margrét Indriðadóttir sjúkraþjálfari og MSc í íþróttafræði mun kynna niðurstöður meistaraverkefnis síns þar sem hún skoðaði íþróttameiðsli ungmenna, algengi og brottfall vegna meiðsla. Þá mun Hafdís Inga Hinriksdóttir félagsráðgjafi og meistaranemi fjalla um meistaraverkefni sitt en þar skoðaði hún upplifun foreldra afreksbarna á ofbeldi í íþróttum. Skráning er á skraning@isi.is og er aðgangur ókeypis.
Nánar ...
01.04.2015

Vladimir Salnikov verður fulltrúi FINA á Smáþjóðaleikum á Íslandi

Vla­dimir Salni­kov, fjórfaldur Ólympíumeistari og margfaldur heimsmeistari í 1500 metra skriðsundi, verður fulltrúi FINA, Alþjóðasundsambandsins, á Smáþjóðal­eikunum sem verða á Íslandi í byrj­un júní nk. Salni­kov er eitt af stóru nöfnum sundsögunnar, synti 800 metra skriðsund sund fyrstur manna á skemmri tíma en átta mín­út­ur og 1.500 metra skriðsund und­ir 15 mín­út­um. Hann sló Evr­ópu­metið í 1.500 metra skriðsundi, á Ólymp­íu­leik­un­um í Montreal 1976 og endaði fimmti í greininni. Hann var Evr­ópu­meist­ari í 400, 800 og 1.500 metra skriðsundi á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu árið eft­ir, sigraði alla keppninauta sína í 800 og 1.500 metra skriðsundi næstu ár og vann til gull­verðlauna á Ólymp­íu­leik­um, Heimsmeistaramótum og Evr­ópu­meist­ara­mót­um ásamt því að setja Ólympíu-, heims- og Evrópumet. Salni­kov synti undir 15 mínútum í 1.500 m skriðsundi, fyrstur manna, á Ólymp­íu­leik­un­um í Moskvu 1980, 14.58,27 mín­út­um. Hann bætti heims­metið sitt tveim­ur árum síðar er hann synti vega­lengd­ina á 14.54,76. Það met stóð í níu ár, þannig að hann hélt metinu í greininni í 11 ár. Salni­kov gat ekki varið ólympíutitil sinn í á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, þar sem Sovétríkin hunsuðu þá leika líkt og Bandaríkin höfðu gert gagnvart leikunum í Moskvu 1980 og þurfti sér­staka und­anþágu til þess að vera í ólymp­íuliði Sov­ét­manna á Ólympíuleikunum í Seúl 1988 vegna aldurs. Hann afsannaði all­ar kenningar um að hann væri orðinn of gam­all til þess að blanda sér í keppni þeirra bestu með því að vinna gull­verðlaun­in í 1.500 metra skriðsundi. Hann var 28 ára gamall og sagðist hann ekk­ert muna eft­ir síðustu 20-30 metr­um sunds­ins svo þreyttur var hann. Þess má til gamans geta að á þeim leikum synti Ragnar Guðmundsson 1500 metra skriðsund fyrir Íslands hönd og setti þar Íslandsmet í greininni, 15:57,54, sem stóð allt til ársins 2011 þegar Anton Sveinn Mckee sló það á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein 2011 er hann synti þar á 15:49,61. Vladimir Salnikov hefur fylgt íþróttinni sinni vel eftir í kjölfar keppnisferlsins. Hann var í Ólympíunefnd Sovétríkjanna frá 1984 til 1991 og landsliðsþjálfari Sovéska sundliðsins í tvö ár eftir hann hætti keppni. Hann vann hjá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í sundtengdum vörum og var varaformaður Sovéska sundsambandsins síðustu árin sem Sovétríkin lifðu. Á árunum 1991 til 2000 sat hann í íþróttamannanefnd FINA og var meðlimur sundtækninefndar LEN á tímabili. Hann hefur um langt árabil setið í stjórn Rússneska sundsambandsins og verið formaður þar frá árinu 2009. Hann situr í stjórn LEN, Evrópska sundsambandsins og einnig í stjórn FINA, Alþjóðasundsambandsins. Salnikov hefur hlotið ýmsa viðurkenningu heima og heiman. Hann var tam sæmdur Lenin orðunni 1985 og heiðursorðu rússneska lýðveldisins (sambærileg fálkaorðunni) 2010. Hann var tekinn inn í Alþjóðlega heiðurshöll sundíþrótta 1993.
Nánar ...
01.04.2015

Vladimir Salnikov verður eftirlitsmaður á sundkeppni Smáþjóðaleikanna í júní

Eitt af stór­menn­um sund­sög­unn­ar, Rúss­inn Vla­dimir Salni­kov, verður eft­ir­litsmaður á sund­keppni Smáþjóðal­eik­anna sem fram fara hér á landi í byrj­un júní. Salni­kov, sem synti 800 m skriðsund sund fyrsta manna á skemmri tíma en átta mín­út­ur og 1.500 m skriðsund und­ir 15 mín­út­um sit­ur í tækn­i­nefnd Sund­sam­bands Evr­ópu. Salni­kov, vakti fyrst alþjóðleg at­hygli þegar hann sló Evr­ópu­metið í 1.500 m skriðsundi, á Ólymp­íu­leik­un­um í Montreal 1976. Hann varð Evr­ópu­meist­ari í 400, 800 og 1.500 m skriðsundi á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu árið eft­ir. Á næstu fimm árum var hann ósigrandi í 800 og 1.500 m skriðsundi og vann til gull­verðlauna á Ólymp­íu­leik­um, heims- og Evr­ópu­meist­ara­mót­um. Salni­kov rauf 15 mín­útna múr­inn í 1.500 m skriðsundi á Ólymp­íu­leik­un­um í Moskvu 1980, 14.58,27 mín­út­um. Hann bætti eigið heims­met tveim­ur árum síðar er hann synti vega­lengd­ina á 14.54,76. Metið stóð í níu ár. Salni­kov fékk sér­staka und­anþágu til þess að vera í ólymp­íuliði Sov­ét­manna 1988 og blés á all­ar hrak­spár um að hann væri orðinn of gam­all til þess að blanda sér í keppni þeirra bestu með því að vinna gull­verðlaun­in í 1.500 m skriðsundi. Síðar sagðist hann ekk­ert muna eft­ir síðustu 20-30 metr­um sunds­ins svo úr­vinda var hann. Hann var þá 28 ára gam­all.
Nánar ...
31.03.2015

Fréttir af Bryndísi Rún Hansen

Sundkonan Bryndís Rún Hansen frá Akureyri sem nú stundar nám á 2 ári við Nova Southeastern Universety háskólann á Flórída hefur jafnt og þétt verið að stimpla sig inn á háskólamótunum í 2 deild í vetur. Bryndís hefur m.a. bætt fylkjamet í 50, 100 og 200 yarda skriðsundi og 50 og 100 yarda flugsundi og þá hefur hún í tvígang verið kosin íþróttamaður vikunnar í fylkinu.
Nánar ...
30.03.2015

Eygló Ósk fyrst íslendinga til að tryggja sér farseðil á ÓL 2016

Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona úr Sundfélaginu Ægi synti 200 metra baksund, fyrr í dag undir lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Brasilíu 2016. Um leið setti hún Norðurlandamet og Íslandsmet í greininni. Tími Eyglóar Óskar er 2:09,86, lágmarkið inn á ÓL er 2:10,60 og gamla Íslandsmetið átti Eygló Ósk sjálf en það var 2:10,34 sett fyrir ári síðan í Danmörku. Gamla Norðurlandametið var 2:10,27. Með þessum árangri er Egló Ósk þriðja hraðasta evrópukonan og 5 hraðasta konan í heiminum í 200 metra baksundi. Eygló Ósk er að keppa á Opna danska meistaramótinu og er í feikna stuði. Við hlökkum til að sjá hana keppa á ÍM50 sem verður í Laugardalslaug 10.-12. apríl 2015.
Nánar ...
29.03.2015

Fleiri fréttir af Antoni

Ant­on Sveinn McKee synti í A úr­slit­um í 200 jarda bringu á NCAA mót­inu í gær­kvöldi. Þar keppti hann við hröðustu sund­menn USA, hafnaði í sjötta sæti á tím­an­um 1.52,97 mín­út­um en tími hans í und­ar­rás­um var 1.51,97 mín. Hann hlaut silf­ur­verðlaun í 200 jarda fjór­sundi deg­in­um áður er boðsundsveit Ala­bama náði þeim glæsi­lega ár­angri að hafna í öðru sæti og bættu þeir tím­an sinn frá und­an­rás­um um eina sek­úndu og settu nýtt skóla­met. Sveit Ala­bama endaði í tí­unda sæti og bættu sig um tvo sæti frá fyrra ári.
Nánar ...
28.03.2015

Anton á pall á NCAA

Anton Sveinn og félagar hans í boðsundsveit Alabama höfnuðu í þriðja sæti í 4x100 yarda fjórsundi á NCAA sem fram fór á fimmtudaginn. NCAA er lokamót háskólanna í Bandaríkjunum sem fer fram í Iowa City dagana 26. – 28. mars. Anton synti bringusundið í boðsundinu á 52.37. Anton er annar Íslendingurinn sem kemst á pall á NCAA mótinu, en Ragnheiður Runólfsdóttir náði því einnig þegar hún var við nám í Alabama. Anton Sveinn synti einnig 500 jarda skriðsund á tímanum 4.16,47 og endaði í 17. sæti einu sæti frá B úrslitum. Á föstudag syndir hann 100 jarda bringusund og laugardag 200 jarda bringusund
Nánar ...
16.03.2015

Hrafnhildur með Íslandsmet

Hrafnhildur Lúthersdóttir sigraði á föstudagskvöld í 100 metra bringu á Speedo sectionals í Florida. http://www.teamunify.com/TabGeneric.jsp?_tabid_=105809&team=fgcspst). Hún synti á 1.08.15 sem er nýtt íslandsmet. Metið átti hún sjálf 1.08.19 frá Berlín 2014 http://www.teamunify.com/fgcspst/UserFiles/Image/sectionals%20friday%20finals%20results.pdf Þetta telst góður tími snemma árs og er sá 16 besti í heiminum sem af er á þessu sundári sjá heimslista FINA http://www.fina.org/H2O/index.php?option=com_wrapper&view=wrapper&Itemid=805
Nánar ...
10.03.2015

Dómaranámskeið

Dómaranámskeið verður haldið 19. mars í Pálsstofu í laugardalslaug kl 18.00. Verkleg kennsla verður á Actavis móti SH, 21. – 22. Mars í Ásvallalaug. Endilega sendið skráningar á : jon.hjaltason@vegagerdin.is
Nánar ...

 

 


Fréttasafn eftir mánuðum