Í dag var tilkynnt um úthlutun Afreksstyrkja ÍSÍ fyrir árið 2010. Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í gær, á afmlisdegi ÍSÍ fimmtudaginn 28. janúar 2010, tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2010. Auk þess samþykkti framkvæmdastjórn ÍSÍ úthlutun styrkja úr sjóði Ólympíufjölskyldu ÍSÍ.
Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 60 milljónum króna en úthlutað er tæplega 45 m.kr. úr Afrekssjóði, 10 m.kr. úr Sjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna og 6 m.kr. úr sjóði Ólympíufjölskyldu. Afrekssjóður hefur enn fjármagn til aflögu á árinu og verður það fjármagn nýtt í samræmi við árangur og verkefni sérsambandanna.
Til Afrekssjóðs bárust umsóknir vegna 29 einstaklinga og vegna 21 verkefna. 28 einstaklingar hljóta styrk að þessu sinni og 15 verkefni.
A-landslið karla í handknattleik hlýtur styrk vegna undirbúnings og þátttöku í lokakeppni EM að upphæð kr. 10 milljónir króna og er það hæsta styrkveitingin að þessu sinni.
Líkt og á síðasta ári er aðeins einn íþróttamaður á A-styrk, Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari en í flokki B-styrkshafa eru ný þau Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður og Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona. Nokkrar breytingar eru á listum þeirra sem hljóta A, B og C styrki sjóðsins. Alls eru 15 íþróttamenn á þeim styrkjum. 1 á A-styrk, 7 á B-styrk og 7 á C-styrk.
Styrktarsjóður ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna mun í ár leggja aukna áherslu á fræðslu fyrir þá íþróttamenn sem eru á styrk hjá sjóðnum. Nánari útfærsla á þeim þáttum verður unnin með viðkomandi sambandsaðilum, en þar er bæði verið að horfa á einstaklingsíþróttir sem og hópíþróttir að þessu sinni.
Ólympíufjölskylda ÍSÍ er samstarf ÍSÍ við fjögur íslensk fyrirtæki: Icelandair, Íslandsbanka, Sjóvá og Valitor, umboðsaðila Visa á Íslandi. Þessi fyrirtæki hafa stutt vel við íslenskt íþróttafólk og nýverið endurnýjaði ÍSÍ samning sinn við þau til næstu ára. Styrkir úr sjóði Ólympíufjölskyldu ÍSÍ eru í formi flugmiða sem og fjármagns og eru hugsaðir vegna þátttöku sérsambanda í stórmótum á við HM og EM.
Árið 2009 gefur í mörgum tilfellum skakka mynd af getu okkar íþróttamanna, þar sem ytri aðstæður í þjóðfélaginu gerðu það að verkum að minna varð um erlenda þátttöku og íþróttahreyfing hafði takmarkaða fjármuni í verkefni sín. Það hefur áhrif á stöðu íþróttamanna á heimslistum sem og þau verkefni sem stefnt er að á árinu 2010. Kostnaðaráætlun sambanda er lægri en oft áður, og er það vegna fækkunar verkefna, en þess má hins vegar geta að kostnaður við hvert einstakt verkefni hefur aukist töluvert vegna óhagstæðs gengis.
Þrátt fyrir góðan styrk að þessu sinni, sem er í samræmi við styrkupphæðir undanfarinna ára er enn langt í land að styrkir ÍSÍ standi undir afreksstarfi sérsambandanna.
Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2010 er 25,5 m.kr. Árið 2006 var styrkurinn 30 m.kr. og hefur sú upphæð verið óbreytt undanfarin ár. Flestir kostnaðarliðir sambandsaðila sem styrktir eru með fjármagni úr sjóðnum er erlendur kostnaður. Verðgildi þess styrks hefur rýrnað mjög ef borin eru saman framlög síðustu ára. Þannig var framlag ríkisins árið 2006 í erlendum upphæðum um 480 þús. bandaríkjadalir eða tæplega 400 þús. evrur, en er 2010 sem nemur tæplega 200 þús. bandaríkjadölum eða rúmlega 140 þús. evrum.
Íslenskt afreksíþróttafólk eru mikilvægar fyrirmyndir fyrir íslenska æsku og þjóðfélagið í heild sinni. Þegar vel gengur styðja Íslendingar vel við sína fremstu íþróttamenn en þegar á móti blæs er stutt í gagnrýnisraddir. Á erlendri grundu er íslenskt íþróttafólk sendiherrar lands síns og eru með í að kynna landið fyrir öðrum þjóðum. Til framtíðar er mikilvægt að hlúa enn betur að þessu fólki með því að gefa því tækifæri á að taka þátt í verðugum verkefnum og styðja við bakið á því með fræðslu og faglegri þekkingu.
Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Örn Andrésson formaður Afrekssjóð ÍSÍ, Friðrik Einarsson formaður afrekssviðs ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afrekssviðs ÍSÍ og starfsmaður Afrekssjóðs ÍSÍ kynntu úthlutun ÍSÍ.
Styrkur til SSÍ skiptist þannig,
Afrekssjóður ÍSÍ