Sundsamband Íslands hefur útbúið meðfylgjandi könnun varðandi starfsemi sambandsins.
Stjórn Sundsambands Íslands leggur metnað sinn í að sinna öllum aðstandendum sundíþrótta eins vel og kostur er. Tilgangur þessarar könnunar er að kanna viðhorf allra aðstandenda til Sundsambandsins. Þannig munu stjórnarmenn geta glögglega séð hvaða þáttum er verið að sinna vel, hvað má betur fara og jafnvel fengið hugmyndir hvernig mætti standa að því.
Við viljum því biðja stjórnir félaganna um að senda könnunina sem víðast innan sinna félaga til að fá sem besta þátttöku
Það er von okkar að vel verði tekið í að svara spurningalistanum sem ætti ekki að taka meira en 10 mínútur af ykkar tíma en þeim mun fleiri sem taka þátt því betur mun könnunin nýtast Sundsambandinu
Könnunina má finna hér