Bryndís Rún Hansen er íþróttamaður Akureyrar fyrir árið 2009 en kjörinu var lýst í Ketilhúsinu í kvöld. Þetta er glæsilegur árangur og verðskuldaður. Jafnframt er útnefning Bryndísar mikil viðurkenning fyrir Sundfélagið Óðinn í heild og það starf sem þar hefur verið unnið.
Bryndís varð í 3. sæti í kjörinu í fyrra en nú stóð hún á toppnum. Í öðru sæti varð Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona úr Þór KA, og handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson þriðji.
Nafnbótinni íþróttamaður Akureyrar fylgir glæsilegur farandbikar sem varðveittur hefur verið í Sundlaug Akureyrar undanfarin ár, þar sem gestir og gangandi geta virt hann fyrir sér. Nú þegar akureyrskur sundmaður hefur í fyrsta skipti unnið titilinn má e.t.v. segja að bikarinn sé loksins kominn heim :)